Kannt þú að hekla snjókorn?

Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir félagsmenn í hvernig eigi að hekla snjókorn. Kennt verður að hekla eftir teiknaðri uppskrift, ganga frá og stífa snjókorn.

  • Hvenær: Þriðjudaginn 25. nóvember nk. kl. 18:00
  • Hvar: Í sal félagsins á Akureyri
  • Hámarksfjöldi: 12
  • ATH! Það þarf að koma með heklunál nr. 1,5 eða 1,75

Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 500.

Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.