Mjög margir skráðu sig á námskeið sem auglýst var nýlega í hvernig eigi að hekla snjókorn. Því hefur verið bætt við öðru námskeiði á Akureyri og verður það haldið kl. 18 á morgun, miðvikudaginn 19. nóvember, í sal félagsins á Akureyri. Nú er verið að hringja í félagsmenn sem skráðir voru á biðlista en allt útlit er fyrir að það sé nú þegar orðið fullt.
Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 500.
Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir