Kærar þakkir

Fjölmargir verkfallsverðir voru á ferð um svæðið
Fjölmargir verkfallsverðir voru á ferð um svæðið

Á miðnætti lauk í annarri lotu í verkfallsaðgerðum félagsins, ásamt 15 öðrum félögum innan starfsgreinasambandsins á landsbyggðinni. Eining-Iðja vill þakka öllum þeim fjölmörgu verkfallsvörðum sem tóku þátt í verkfallsvörslu á meðan þessari lotu stóð yfir. Kærar þakkir félagar.

Það er líka ánægjulegt hvernig félagsmenn og flestir aðrir virtu þær verkfallsaðgerðir sem voru í gangi.