Jóna Berta sæmd fálkaorðu

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi níu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Jóna Berta Jónsdóttir var ein þeirra, en flestir þekkja hana af störfum fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar undanfarna áratugi. Jóna Berta er heiðursfélagi Einingar-Iðju og vill félagið óska henni hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna.