Jólakortagerð – nokkur pláss laus

Á morgun verður námskeið í jólakortagerð í sal félagsins á Akureyri. Þar sem það námskeið fylltist var ákveðið að bæta við öðru námskeiði. Enn eru nokkur pláss laus og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig því ef lágmarksfjölda verður ekki náð verður því aflýst.

Seinna námskeiðið verður miðvikudaginn 13. nóvember nk. kl. 19:00, í sal félagsins á Akureyri, 2. hæð Skipagötu. Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.