Jólakortagerð - Bætt við námskeiði

Í vikunni auglýsti félagið tvö námskeið í jólakortagerð fyrir félagsmenn, annað á Akureyri og hitt í Fjallabyggð. Góð viðbrögð urðu við auglýsingunni því fullt er á námskeiðið á Akureyri og aðeins pláss fyrir tvo í viðbót í Fjallabyggð. Ákveðið hefur verið að bæta við öðru námskeiði á Akureyri og verður það miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 19:00 í sal félagsins á Akureyri.

Félagið fyrirhugar að halda ÞRjÚ námskeið í jólakortagerð fyrir félagsmenn ef næg þátttaka fæst, TVÖ á Akureyri og EITT í Fjallabyggð. Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 1.000. Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir.

Námskeiðin á Akureyri verða þriðjudaginn 12. og miðvikudaginn 13. nóvember nk. kl. 19:00, í sal félagsins á Akureyri, 2. hæð Skipagötu. Námskeiðið í Fjallabyggð verður fimmtudaginn 14. nóvember nk. kl. 19:00, í sal félagsins í Fjallabyggð, Eyrargötu 24b Siglufirði

Skráning á skrifstofum Einingar-Iðju sem fyrst og í síma 460 3600, á venjulegum opnunartíma.