Jólakaffi á Iðnaðarsafninu

Jólakaffið á Iðnaðarsafninu sem átti að vera 5. desember sl. en var frestað vegna veðurs, verður á morgun laugardaginn 12. desember milli kl. 14 og 17.

Í tilkynningu frá safninu er fólk hvatt til að koma og eiga skemmtilega stund á safninu. Í síðasta sinn verður hægt að skoða myndir á pappír frá starfsárum Sambandsverksmiðjanna.

Iðnaðarsafnið verður lokað í desember og janúar en opnar aftur 6. febrúar 2016.