Jólakaffi á Iðnaðarsafninu - frestað um viku

Vegna veðurs var ákveðið að fresta jólakaffinu um eina viku og verður því laugardaginn 12. desember á sama tíma

Iðnaðarsafnið á Akureyri býður upp á jólakaffi og piparkökur laugardaginn 12. desember nk. milli kl. 14 og 17.

Í tilkynningu frá safninu er fólk hvatt til að koma og eiga skemmtilega stund á safninu. Í síðasta sinn verður hægt að skoða myndir á pappír frá starfsárum Sambandsverksmiðjanna.

Iðnaðarsafnið verður lokað í desember og janúar en opnar aftur 6. febrúar 2016.