Nú í vikunni var jólablað félagsins prentað í Ásprent og verður það borið út í næstu viku, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu fá blaðið sent til sín með póstinum.
Í blaðinu, sem er 36 síður, má m.a. finna umfjöllun um starfsmannamál félagsins en óvenjumikið hefur verið um breytingar hvað þau mál varðar að undanförnu. Það má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári. Fjallað er um fyrirhugaðar vinnutímastyttingar hjá ríki og sveitarfélögum, Gallupkönnun félagsins kemur einnig við sögu og margt fleira má finna í blaðinu.
Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.
Þeir sem fá Dagskránna inn um lúguna hjá sér miðvikudaginn 9. desember nk. en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.