Jólablaðið er komið á netið

Jólablað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun og verður borið út miðvikudaginn 8. desember nk. með Dagskránni á öll heimili á félagssvæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 36 síður að stærð, er m.a. viðtal við Sigrúnu og Möddu, fyrrum starfsmenn félagsins. Fjallað er um tímamóta samstarfssamning á milli félagsins og FVSA og sjá má hvaða ferðir verða í boði fyrir félagsmenn á næsta ári. Farið er yfir launahækkanir næsta árs, laun um jólin og fjallað um greiðslur úr félagsmannasjóði SGS. Ketilkaffi bjóða lesendum upp á tvær uppskriftir, ný Gallup könnun félagsins kemur einnig við sögu og margt fleira má finna í blaðinu.