Jólablaðið borið út í gær

Nú er Ásprent búið að prenta og ganga frá jólablaði félagsins og átti það að berast flestum félagsmönnum og öðrum sem búa á félagssvæðinu í gær. Það var borið út með Dagskránni á þau heimili á svæðinu sem henni er dreift á, en aðrir fá blaðið sent til sín með póstinum. 

Í blaðinu, sem er 36 síður, má m.a. finna ferðasögu úr utanlandsferð til Austurríkisds sem félagið stóð fyrir á árinu fyrir félagsmenn og einnig má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári. Umfjöllun um nýja Gallupkönnun sem gerð var fyrir félagið, lau um jólin og margt fleira. Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fengu dagskránna inn um lúguna hjá sér í gær en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.