Nú er Ásprent búið að prenta og ganga frá jólablaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum sem búa á félagssvæðinu í dag. Það verður borið út með Dagskránni á þau heimili á svæðinu sem henni er dreift á, en aðrir fá blaðið sent til sín með póstinum.
Í blaðinu, sem er 40 síður, má m.a. finna ferðasögur úr utanlandsferð til Þýskalands og Luxemborgar og úr „fjallaferðinni“ sem félagið stóð fyrir á árinu fyrir félagsmenn. Einnig má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári og sagt frá nýjum orlofskosti næsta sumar, íbúð á Spáni en það þarf að skila inn umsókn fyrir 1. febrúar nk, vegna hennar. Þá má einnig finna viðtal við Brynhildi Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna og margt fleira. Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.
Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.