Jólablaðið borið út í dag

Nú er Ásprent búið að prenta og ganga frá jólablaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum sem búa á félagssvæðinu í dag. Það verður borið út með Dagskránni á þau heimili á svæðinu sem henni er dreift á, en aðrir fá blaðið sent til sín með póstinum. 

Í blaðinu, sem er 40 síður, má m.a. finna ferðasögu úr utanlandsferð til Englands sem félagið stóð fyrir á árinu fyrir félagsmenn. Einnig má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári og smá bút úr bók um sögu félagsins sem verið er að skrifa. Þá má einnig finna viðtal við Steina sem lét af störfum hjá félaginu í haust og margt fleira. Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.