Nú er búið að prenta og ganga frá jólablaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum sem búa á félagssvæðinu í dag, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu fá blaðið sent til sín með póstinum.
Í blaðinu, sem er 44 síður, má m.a. finna ferðasögu úr innanlandsferð sem félagið stóð fyrir á árinu fyrir félagsmenn. Einnig má sjá hvaða ferðir verða í boði á næsta ári. Viðtöl við hjónin Jón og Hlíf sem eru staðarhaldarar á Illugastöðum og trúnaðarmannahjónin Birnu og Ævar. Það er fjallað um breytingar á réttindakerfi Stapa sem tekur gildi um næstu áramót og margt fleira. Blaðið er komið á netið og má lesa það hér sem pdf og hér sem Flash.
Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.