Jólaaðstoðin 2016 í Eyjafirði

Eins og undanfarið ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga 9. desember nk. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.

Símatíma – bóka viðtal:

Eins og auglýst hefur verið þá hringir fólk í síma 570 4090 alla virka daga milli kl. 10-12 til 9. desember nk. Þar er fólk minnt á að það þarf að hafa með sér staðgreiðsluyfirlit.

Viðtöl í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14, í sal Einingar-Iðju á 2 hæð:

Þau verða alla virka daga kl. 13-16 til og með 9. desember. Það þarf að koma með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum og fylla út umsókn. Sá háttur verður hafður á að hringt er í þá sem fá ekki aðstoð.

Þau sem fá úthlutun sækja kortin þriðjudaginn 13. desember og miðvikudaginn 14. desember milli kl. 13 og 16. Auk þess fá umsækjendur úttektarkort fyrir föt og jólagjafir hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b, 16. desember. Nánari upplýsingar verða á úttektarkortum.