Jólaaðstoð 2014 í Eyjafirði

Jólaaðstoð, hvernig sæki ég um? Þú hringir í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga frá og með deginum í dag, 27. nóvember, til 5. desember. Eins og fyrir síðustu jól er sótt um á einum stað hjá jólaaðstoðinni og samstarfsaðilarnir sameinast um að styðja þig með þátttöku fyrirtækja og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu.

Það þarf að hringja fyrir 5. desember nk.

Samstarfsaðilar að jólaaðstoðinni eru: Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Rauðu kross Íslands, Hjálpræðisherinn og Hjálparstarf kirkjunnar.