Jólaaðstoð, hvernig sæki ég um? Þú hringir í síma 537 9050 milli kl. 11:00 og 13:00 á mánudegi, þriðjudegi eða miðvikudegi. Eins og fyrir síðustu jól er sótt um á einum stað hjá jólaaðstoðinni og samstarfsaðilarnir sameinast um að styðja þig með þátttöku fyrirtækja og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu. Það þarf að hringja fyrir 5. desember nk.
Samstarfsaðilar að jólaaðstoðinni eru: Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Rauði kross Íslands, Hjálpræðisherinn og Hjálparstarf kirkjunnar.