Fyrirtækið K&G í Sandgerði hefur keypt allar eignir og kvóta útverðarfélagsins Hvamms í Hrísey. Þetta kemur fram í frétt hjá RÚV. Í febrúar var öllum starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp störfum, sem var reiðarslag fyrir samfélagið enda Hvammur langstærsti vinnustaðurinn í eynni. Uppsagnirnar áttu að taka gildi um næstu mánaðamót en nú er ljóst að til þess kemur ekki því allir starfsmennirnir 15 verða endurráðnir. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi í Hrísey í gærmorgun. Allar eignir Hvamms, svo sem frystihúsið, kvóti og línubáturinn Siggi Gísla fylgja með í kaupunum en eigendur Hvamms ætla að halda eftir harðfiskvinnslunni.
Eftir að tilkynnt var um fyrirhugaða lokun Hvamms bættist Hrísey í hóp þeirra byggðarlaga sem Byggðastofnun skilgreinir sem byggðir í bráðum vanda og Hríseyingum gefst nú kostur á að sækja um að fá að nýta viðbótaraflaheimildir sem Byggðastofnun hefur til umráða á næsta fiskveiðiári. Það gæti styrkt rekstur K&G í eynni.
K&G rekur útgerð og fiskvinnslu í Sandgerði og þar starfa um 30 manns. Eigendurnir eru væntanlegir norður eftir helgi til að ræða við Eyjarskeggja.