Jákvæðar fréttir frá Dalvík

Á mbl.is í gær var frétt um að nýtt fiskvinnslufyrirtæki myndi á næstu dögum hefja starfsemi á Dalvík. Félagið sem stendur að fyrirtækinu hefur fengið nafnið Marúlfur ehf, en að stofnun þess koma bæði einstaklingar og fyrirtæki í sveitafélaginu. „Það er fagnaðarefni þegar svona jákvæðar fréttir berast af atvinnumálum á svæðinu. Vonandi fá sem flestir starfsmenn Norðurstandar vinnu hjá nýja fyrirtækinu,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.

Í tilkynningu frá Marúlf kemur fram að unnið hafi verið að stofnun fiskvinnslunnar allt frá því að ljóst var á að Norðurströnd ehf. yrði tekin til gjaldþrotaskipta. Norðurströnd var sérhæft vinnslufyrirtæki í steinbítsafurðum sem keypti hráefni bæði ferskt á fiskmörkuðum innanlands og heilfryst aðallega frá Noregi og mun nýja fyrirtækið taka upp þráðinn þar sem frá var horfið við gjaldþrot Norðurstrandar og byggja á sérhæfðri reynslu starfsfólksins og þeim viðskiptasamböndum sem til voru og enn eru til staðar. Starfsmannafjöldi nýja félagsins er áætlaður 20 til 25 fyrsta rekstrarárið og gert er ráð fyrir að öll starfsemi félagsins verði að Ránarbraut 10 þar sem Norðurströnd var áður til húsa. Starfsemi verður þó ekki að Hafnarbraut þar sem hluti starfseminnar hafði verið. Hjá Norðurströnd unnu þegar mest var um 45 manns, en undir lokin voru starfsmenn 30 til 35.

Guðmundur St. Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hins nýja félags, en hann var áður framkvæmdastjóri Norðurstrandar. Í samtali við mbl.is segir hann að vinnslan verði byggð á þeirri sérstöðu sem Norðurströnd hafði skapað sér bæði í hráefniöflun og sölu afurða. Norðurströnd var ekki aðeins stærsti steinbítsframleiðandi hér á landi heldur í Evrópu.