Jafnaðarmannaflokkar og landssamtök launafólks á Norðurlöndum hittast á ársfundi SAMAK, 16.-17. janúar í Ósló, en SAMAK er samstarfsvettvangur norrænu verkalýðshreyfingarinnar. Fundurinn hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu sem m.a. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, skrifar undir.
Sameiginlegt erindi á ársfundi SAMAK 16.-17. janúar 2017.
Norðurlönd = Mannsæmandi störf
Á óvissutímum bregðumst við við með aukinni samheldni og styrkingu norræna líkansins. Þá þarf að grípa til aðgerða til að tryggja að vel skipulagt atvinnulíf sé hornsteinn samfélagsins.
Norræna líkanið hefur með mikilli samheldni gagnast borgurum Norðurlanda áratugum saman. Við höfum náð fram góðri blöndu af skilvirkni, jafnræði, jafnrétti og trausti sem á sér engan sinn líka í heiminum.
Þrátt fyrir að okkar dönsku, finnsku, íslensku, norsku og sænsku samfélagslíkön séu ólík, byggja þau öll á jafnaðarmannahugsjóninni og eru í raun öll tilbrigði við sama líkanið. Gildin eru þau sömu. Við byggjum öll á frelsi, jafnrétti og bræðralagi og lýðræði, tjáningarfrelsi og reglum réttarríkisins.
Grunnstoðirnar þrjár í norræna líkaninu eigum við einnig sameiginlegar: Ábyrga efnahagsstefnu sem byggir á virkri atvinnuþátttöku, gott opinbert velferðarkerfi og, sérstaða Norðurlanda, góður, vel skipulagður og mannsæmandi atvinnumarkaður.
Norræna samfélagslíkanið hefur lukkast eins vel og forfeður okkar gátu einungis leyft sér að dreyma um. En þetta vel heppnaða líkan mætir stöðugum ágangi og við þurfum að verja það öllum stundum.
Alþjóðleg skipting starfa og alþjóðaviðskipti eru áfram lykilatriði þegar kemur að því að viðhalda atvinnuþátttöku og velferð.
Hins vegar verður æ ljósara að alþjóða hnattvæðingin kallar á nýjar aðgerðir. Við viljum tryggja að allir geti nýtt sér þau tækifæri sem alþjóða hnattvæðing býður upp á. Það þarf einbeittan vilja til þess að deila gæðunum réttlátlega í hverju landi og fjárfesta í þekkingu og hæfni fólks. Markaðsöflin eiga að vera þjónar fólksins, ekki húsbændur þess. Þessa þörf sjáum við ekki síst þegar félagsleg undirboð breiðast út á vinnumarkaðnum og ungt fólk fær ekki fasta vinnu.
Við ætlum að styrkja pólitíska stöðu okkar á alþjóðavettvangi. Við ætlum að vinna harðar að því að þróun mála í Evrópu og á alþjóðavísu verði friðsamleg, að jafnvægi komist á loftslag í heiminum, að lífsgæði verði jöfnuð og lýðræði tryggt.
Hér á Norðurlöndum er aðkallandi að standa vörð um okkar góða vinnumarkað. Að öðrum kosti fer fyrir honum eins og gerst hefur í flestum öðrum löndum; verkalýðshreyfingin veikist, kjör vinnandi fólks rýrna og launamunur verður óásættanlegur. Þetta grefur undan norræna líkaninu eins og það leggur sig.
Við viljum að vinnumarkaðurinn byggi á föstum, öruggum og mannsæmandi störfum. Við viljum auka færni fólks, ekki lækka laun þess.
Að hluta snýst þetta um baráttuna gegn hægri öflunum í stjórnmálalífinu sem hafa önnur samfélagsleg leiðarljós. Við viljum einnig vinna að ákveðnum aðgerðum á breyttum vinnumarkaði. Þess vegna kynnum við nýtt sameiginlegt verkefni undir heitinu ”Vinnumarkaður framtíðarinnar”. Þannig viljum við þróa stjórntæki morgundagsins fyrir vinnumarkað sem tekur æ meira mið af aukinni tækni.
Að bæta tilveru fólks í gegnum öflugra norrænt samfélagslíkan er á sama tíma það mikilvægasta sem hægt er að gera til þess að sporna gegn auknu lýðskrumi og öfgastefnum.
Jafnaðarmannaflokkarnir og verkalýðshreyfingin hafa krafta og getu til þess að bera ríki Norðurlanda fram á við. Það á að styrkja norræna líkanið, en ekki að útrýma því. Þess vegna verðum við að standa saman.
Mette Frederiksen, formaður Socialdemokratiet, Danmörk
Antti Rinne, formaður Socialdemokraterna, Finnland
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Ísland
Jonas Gahr Støre, formaður Arbeiderpartiet, Noregur
Stefan Löfven, formaður Socialdemokraterna, Svíþjóð
Lizette Risgaard, forseti LO, Danmörk
Jarkko Eloranta, forseti LO, Finnland
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, Ísland
Gerd Kristiansen, forseti LO, Noregur
Karl-Petter Thorwaldsson, forseti LO, Svíþjóð