Íslandshótel - gistimiði 2018

Eining-Iðja hefur til sölu niðurgreidda gistimiða frá Íslandshótel, en miðarnir gilda á 15 Fosshótel, Grand Hótel Reykjavík og Hótel Reykjavík Centrum fyrir félagsmenn. Verð miða er kr. 10.500 og gildir hann fyrir árið 2018. Miðana er hægt að kaupa á skrifstofum Einingar-Iðju. Athugið að yfir sumartímabilið þarf að nota tvo gistimiða og að sumartímabilið er ekki það sama í Reykjavík og á landsbyggðinni.

Hver miði gildir fyrir eina nótt í tveggja manna herbergi með morgunverði.

  • Reykjavík
    • Vetur (1. janúar - 14. maí og 1. okt - 31. desember) - 1 gistimiði fyrir eina nótt
    • Sumar (15. maí til og með 30. septembert) - 2 gistimiðar fyrir eina nótt
  • Landsbyggðin
    • Vetur (1. janúar- 31. maí og 1. september - 31. desember) - 1 gistimiði fyrir eina nótt
    • Sumar (1. júní til og með 31. ágúst) - 2 gistimiðar fyrir eina nótt 

Fosshótel bjóða upp á gistingu á 15 hótelum og er í boði fjölbreytt úrval af gistingu um allt land, ýmist sem sumarhótel eða heilsárshótel. Fosshótelin eru reyklaus hótel.

Bókanir skulu berast beint á viðkomandi hótel eða á söluskrifstofu Íslandshótela. Athugið ekki er hægt að bóka í gegnum bókunarvél á heimasíðu ef greiða á með gistimiða. Ráðlagt er að bóka með fyrirvara, en við pöntun þarf að koma fram að greitt verði með gistimiða.

  • Eitt barn 12 ára og yngri gistir endurgjaldslaust í herbergi með foreldri/um ef deilt er rúmi.
  • Ath! Aukagjald er rukkað á Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík Centrum, Fosshótel Reykjavík og Fosshótel Glacier Lagoon 6.000 kr. sem greiðist við innritun. 
  • Miðarnir gilda ekki á sérstökum viðburðum eins og Mærudögum á Húsavík, Menningarnótt í Reykjavík o.s.frv.

Miðarnir gilda á eftirfarandi hótelum

Nánari upplýsingar má finna á www.islandshotel.is