Nýlega auglýsti félagið eftir þjónustufulltrúa á Dalvík og bárust tíu umsóknir um starfið. Capacent sá um ráðningarferlið og er búið að ráða í starfið. Nýr starfsmaður félagsins á Dalvík heitir Íris Hauksdóttir og mun hefja störf þann 1. desember nk. Freydís Antonsdóttir, sem starfað hefur fyrir félagið á Dalvík frá því í maí 2008, mun af eigin ósk láta af störfum nokkrum dögum síðar.
Íris hefur stundað nám og starfað á Bifröst frá árinu 2009 en flutti til Dalvíkur í mars sl. Íris segist hlakka til að byrja og takast á við þau verkefni sem hennar bíða hjá félaginu.