Margnota innkaupapoki

Ertu félagsmaður í Einingu-Iðju og vilt stuðla að umhverfisvænum lífsstíl? Kíktu þá í heimsókn á skrifstofur félagsins á Akureyri, Fjallabyggð eða á Dalvík og náðu þér í margnota innkaupapoka sem félagið lét útbúa fyrir félagsmenn.