Illugastaðir – byrjað að klæða húsin

Eins og við sögðum frá um daginn þá ákvað stjórn Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum fyrr á árinu að fara í framkvæmdir við að klæða húsin á svæðinu að utan með stálklæðningu. Eins og sjá má á myndinni er byrjað að setja klæðningu á fyrstu húsin.  Fjögur hús eru undir í einu, byrjað er að setja járn á tvö þeirra og undirbúningur fyrir járn er hafin á næstu tveimur.

Myndin var tekin er tíðindamaður heimasíðunnar var staddur á Illugastöðum sl. helgi.