Illugastaðadagur - þér er boðið

Í tilefni þess að nú eru 50 ár liðin frá opnun orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum verður haldinn sérstakurIllugastaðadagur sunnudaginn 9. september milli kl. 13 og 17. Allir eru velkomnir í Orlofsbyggðina á Illugastöðum í Fnjóskadal. Til sýnis verða nokkur hús, það verður ókeypis í sund, boðið verður upp á kaffi og kleinur og grillaðar pylsur.

Allir eru velkomnir og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært að taka bíltúr í Fnjóskadalinn og njóta dagsins.