Iðnaðarsafnið - lokað vegna breytinga til 7. febrúar

Iðnaðarsafnið verður lokað til 7. febrúar nk. vegna margvíslegra breytinga. Á neðri hæðinni er verið bæta við og færa til sýningargripi, en þar má t.d. nefna gripi frá Hárgreiðslustofunni Snyrtihúsið sf. sem var til húsa í Skipagötu 1 og er nú hætt starfsemi og eftirlét Iðnaðarsafninu marga gripi.

Á efri hæðinni er verið að taka inn gripi frá prentiðnaði og er setjaravél þar á meðal margra góðra gripa frá Siglufjarðarprentsmiðju sem stofnuð var árið 1917.

Á heimasíðu Iðnaðarsafnsins segir að mikil vinna sé framundan og vel þegið ef einhverir sæju sér fært að aðstoða. Áhugasamir geta haft samband í síma safnsins sem er 462 3600