Eins og áður hefur komið fram keypti félagið fimm nýjar íbúðir í Álalind 2 í Kópavogi. Nú er verið að parketleggja þær, en meðfylgjandi mynd var tekin í gær.
Félagið fékk íbúðirnar afhentar 20. desember sl., en vegna þess hve mikill raki var í plötunni var ekki hægt að byrja á verkinu fyrr en nú. Því mun það dragast að íbúðirnar verði teknar í notkun, vonandi verða þær komnar í gagnið fyrir febrúarlok.