Íbúðir í Reykjavík - þrif innifalin

Frá og með 1. mars nk. tekur fyrirtækið Sólar ehf. við allri umsjón á íbúðum félagsins í Reykjavík. Þessi breyting á umsjónaraðila hefur í för með sér að leigjandi þarf ekki lengur að þrífa íbúðina eftir leigutíma. Auðvitað þarf að skila henni full frágenginni og snyrtilegri.

Hægt verður að leigja lín hjá umsjónaraðila, en það þarf að panta með góðum fyrirvara.