Íbúðin á Spáni - opið fyrir umsóknir á netinu

Sumarið 2019 verður aftur í boði íbúð á Spáni fyrir félagsmenn. Um er að ræða efri sérhæð í glænýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu sem er í um 30 mín. fjarlægð frá Alicante, á svæði sem heitir Casa Tarife. 

Í boði verða níu leigur, tvær vikur í senn, og verða skiptidagar á þriðjudögum.

Verð fyrir tvær vikur er kr. 90.000, auk þrifagjalds sem borgað er á staðnum.

Leigutímabilið hefst 28. maí og mun standa út september 2019.

ATHUGIÐ! Umsókn þarf að skila til félagsins fyrir 8. febrúar 2019, rafrænt í gegnum félagavefinn. (Ferð í orlofshús og svo umsókn. Það eina sem er í boði núna er þessi íbúð, en hægt er að velja nokkur tímabil.)

Úthlutun verður lokið nokkrum dögum síðar. Hægt er að skrá sig inn á félagavefinn með rafrænum skilríkjum eða veflykli. Ef þú hefur ekki virkjað rafræn skilríki eða fengið veflykil frá félaginu þá þarftu að sækja um aðgang að félagavefnum og fá sendan veflykil heim.

Nokkrar myndir

Íbúðin er efri sérhæð í glænýjum íbúðakjarna.  Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og tvö baðherbergi. Gólfhiti er á baðherbergjum og loftkæling í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið og þaðan er gengið uppí íbúðina sjálfa sem er öll á einni hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er gengið upp á stórar einka þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni. Rafmagn og vatn er innifalið í leiguverði.

Í íbúðinni er:

  • 1 x Barnaferðarúm
  • 1 x Svefnsófi í stofu
  • 2 x Hjónarúm
  • Aukabeddi/dýna
  • Áskriftar sjónvarp (50 breskar rásir)
  • Barna matarstóll
  • Borðbúnaður fyrir 12 manns
  • Brauðrist
  • DVD spilari
  • Gasgrill
  • Handklæði
  • Hárblásari
  • Hraðsuðuketill
  • Kaffivél
  • Kolagrill
  • Pottar og pönnur
  • Rúmföt
  • Samlokugrill
  • Sjónvarp
  • Sólbekkir 6 stk
  • Sléttujárn
  • Sængur og koddar fyrir 6 manns
  • Uppþvottavél
  • Viskustykki og tuskur
  • WiFi Internet
  • Þvottavél
  • Örbylgjuofn

Nánari lýsing

Casa Tarifa er efri sérhæð í glænýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin, gólfhiti er í húsinu og loftkæling í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið og þaðan er gengið uppí íbúðina sjálfa sem er öll á einni hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er síðan gengið uppá stórar einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu,  þar eru sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, kolagrill, markísa og æðislegt útsýni.  Fallegur sundlaugargarður er inná milli húsana og hverfið er mjög rólegt og gott. Matvöruverslunin ALDI og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.

Eldhús, stofa og borðstofa

Fyrir frama húsið er stór flísalögð verönd og þaðan er gengið uppí íbúðina,  komið er inní opið rými með fallegri stofu, borðstofu og eldhúsi. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og nýr flatskjár með fjölmörgum erlendum sjónvarpstöðvum í áskrift. Loftkæling er í stofunni og einnig er WiFi internet.

Eldhúsið er opið yfir í stofu það er bjart og vel búið með ísskáp með frystihólfi. Í eldhúsinu er uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar.  Frá eldhúsi og stofu er gengið út á góðar svalir þar eru borð, stólar og markísa og þaðan er gengið uppá þaksvalirnar sem eru yfir íbúðinni með útsýni yfir æðislegan sameiginlegan sundlaugargarð fyrir íbúðarkjarnann. Á þaksvölum eru sólbekkir, stórt borð, stólar og risa stór markísa sem draga má yfir til að fá hlé frá sólinni.

Svefnherbergin eru tvö

Húsið er með tveimur svefnherbergjum og er með gistirými fyrir 4-6.

Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt inná baðherbergi með sturtu.  Hitt svefnherbergið er með 135cm breiðu rúmi og einnig er þar auka 90cm dýna sem nota má fyrir barn. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.

Baðherbergin eru tvö

Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er innaf hjónaherbergi.
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja hverri leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest og einnig er hárblásari og sléttujárn í húsinu.

Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Verönd og svalir

Rúmgóðar verandir eru fyrir framan húsið og einnig eru góðar svalir út frá stofunni, þaðan er síðan gengið uppá á einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu og af þeim sést vel yfir sundlaugargarðinn, uppi á þaksvölum eru 6 sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, kolagrill, markísa og fallegt útsýni yfir hverfið og niður á strönd.

Sundlaugargarður

Stór sameiginlegur sundlaugargarður er inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar er sundlaug með barnalaug og sturtur og frábær aðstaða til að sóla sig og njóta.  Garðurinn er einstaklega fallegur mjög fjölskylduvænn og húsið er vel staðsett í garðinum. 

Svæðið skiptist í tvö hverfi Cabo Roig og Lomas de Cabo Roig

Cabo Roig hverfið er fyrir neðan hraðbrautina og er mjög vinsælt hverfi þar sem allt er til alls, þar er hin vinsæla göngugata sem stundum er kölluð „The Golden Mile“ og þar er alltaf mikið mannlíf og gaman að rölta um. Mikið úrval veitingastaða og ekki má gleyma öllum Kínabúðunum þar sem allt fæst fyrir ekki neitt, síðan er ströndin þarna rétt fyrir neðan og hægt að rölta þangað.  Í hverfinu er matvöruverslunin Consum, heilsugæsla, markaður á fimmtudögum og fjöldin allur af veitingastöðum.

Í Cabo Roig hverfinu erum við með 5 raðhús og tvær íbúðir aðra á La Rotonda íbúðarhótelinu  og hina í Costa Marina íbúðarhótelinu.

Lomas de Cabo Roig hverfið er aðeins ofar en samt mjög stutt frá, þar erum við með 3 einbýlishús, 5 raðhús og eitt parhús. Hverfið er mjög rólegt og gott og þar er matvöruverslunin ALDI í göngufæri og nokkrir veitingastaðir.

Það tekur ca. 30 mín að labba í La Zenia mallið frá hverfinu.

Frábærir golfvellir eru mjög stutt frá, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas svo einhverjir séu nefndir.