Íbúðin á Spáni - 35 sóttu um

Nýlega rann út frestur til að skila inn umsókn fyrir íbúðina á Spáni, sem er nýr orlofskostur fyrir félagsmenn næsta sumar. Alls sóttu 35 félagsmenn um leigurnar níu sem í boði eru, tvær vikur í senn.

Um miðjan febrúar verður búið að úthluta. Fljótlega eftir það fá þeir félagsmenn sem sóttu um að vita hvort þeir fengu úthlutað eður ei.