Í lok síðustu viku rann út frestur til að skila inn umsókn fyrir íbúðina á Spáni, sem er orlofskostur fyrir félagsmenn næsta sumar. Alls sóttu 30 félagsmenn um leigurnar níu sem í boði eru, tvær vikur í senn.
Úthlutunarferlið er í gangi og fljótlega eftir að því lýkur fá þeir félagsmenn sem sóttu um að vita hvort þeir fengu úthlutað eður ei.