Í dag er síðasti dagur til að skila inn gögnum

Vert er að minna aftur á að í  desember þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi í dag, 17. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2022.

  • Skrifstofan á Akureyri er opin milli kl. 8 og 16.
  • Skrifstofan á Dalvík er opin milli kl. 10 og 16.
  • Skrifstofan í Fjallabyggð er opin milli kl. 9 og 15.

Upplýsingar um sjúkrasjóð og fræðslustyrki