Hverjir taka EKKI þátt í verkfalli?

Vert er að taka fram hverjir eru að fara í verkfall á miðnætti og hverjir eru EKKI að fara í verkfall. Einungis þeir félagsmenn sem starfa eftir samningum við Samtök atvinnulífsins, þ.e. á almenna vinnumarkaðnum, eru að fara í verkfall. Þeir sem EKKI eru að fara í verkfall eru m.a.:

  • Þeir sem eru í atvinnuleit
  • Dagmæður
  • Starfsmenn
    • sveitarfélaga
    • á Hólmasól og Hlíðabóli á Akureyri
    • hjá ríkisstofnunum
    • á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit
    • við beitningu og línu
    • á bændabýlum (Ekki ferðaþjónusta)
    • vaktavinnumenn hjá Becromal
    • hjá Norðurorku
    • starfsmenn íþróttafélaga