Hverjir taka ekki þátt?

Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir og er vert að taka fram að einungis þeir sem starfa eftir samningum við Samtök atvinnulífsins, þ.e. á almenna vinnumarkðinum taka þátt í henni. Þeir sem EKKI taka þátt eru m.a.:

  • Þeir sem eru í atvinnuleit
  • Starfsmenn
    • sveitarfélaga
      • Dagmæður
      • á Hólmasól og Hlíðabóli á Akureyri
    • hjá ríkisstofnunum
    • á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit
    • við beitningu og línu
    • á bændabýlum (Ekki ferðaþjónusta)
    • eftir stórframkvæmdasamningnum (Vaðlaheiðargöng)
    • vaktavinnumenn hjá Becromal
    • hjá Norðurorku