Hurðin læst á Akureyri en samt er opið!

Vegna nýrrar reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar mun félagið eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu á skrifstofunni á Akureyri. Skrifstofur félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð verða opnar á hefðbundnum tíma, alla vega til að byrja með. Þetta er gert þar sem einungis tíu einstaklingar mega vera í sama rými. Núgildandi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tók gildi 25. mars 2021 og gildir til og með 15. apríl 2021. Virk ráðgjafarnir fjórir munu vinna að heiman en annað starfsfólk verður á sínum stað og mun sinna erindum félagsmanna í gegnum síma og tölvupóst á hefðbundnum opnunartíma. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sími félagsins er 460 3600 og netfangið er ein@ein.is.

Hér má finna netföng einstakra starfsmanna. 

Ef erindið er áríðandi og ekki hægt að leysa með símtali eða með rafrænum hætti er hægt að hafa samband og við leysum málið saman. T.d. ef viðkomandi er að fara í orlofsíbúð eða hús og er að ná í lykil. 

  • Akureyri         460 3609
  • Dalvík             460 3615
  • Fjallabyggð     460 3620

Skil á gögnum
Hægt er að senda gögn í pósti á skrifstofur félagsins, einnig má setja þau í póstkassa sem finna má við innganginn á skrifstofu félagsins á 2. hæð Alþýðuhússins. 

Jafnframt má senda gögnin rafrænt með tilheyrandi fylgiskjölum á ein@ein.is Vinsamlegast sendið bankaupplýsingar umsækjanda, ef við á. 

SJÚKRASJÓÐUR

FRÆÐSLUSTYRKIR

  • Umsóknareyðublöð (þarf að prenta út) má finna hér

Taka má mynd af eyðublaðinu og senda á ein@ein.is ásamt frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing og nafn og  kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki.