Á meðan neyðarstig varir vegna útbreiðslu COVID-19 mun félagið eingöngu veita félagsmönnum fjarþjónustu. Þetta er gert með velferð félagsmanna og starfsmanna í huga. Við munum takmarka aðgengi að skrifstofum félagsins frá og með næsta mánudegi um óákveðinn tíma. Starfsfólkið verður samt á sínum stað og mun sinna erindum félagsmanna í gegnum síma og tölvupóst á hefðbundnum opnunartíma. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Sími félagsins er 460 3600 og netfangið er ein@ein.is.
Hér má finna netföng einstakra starfsmanna.
Nýlega var starfsfólkinu á Akureyri skipt upp í tvo hópa. Á meðan annar hópurinn sinnir störfum sínum á skrifstofunni mun hinn hópurinn vinna heima. Þessi hópaskipting verður áfram við lýði til að minnka líkur á að skerða þurfi þjónustuna enn frekar.
Ef erindið er áríðandi og ekki hægt að leysa með símtali eða með rafrænum hætti er hægt að hafa samband og við leysum málið saman.
Skil á gögnum
Hægt er að senda gögn í pósti á skrifstofur félagsins, einnig má setja þau í póstkassa sem finna má við innganginn á skrifstofu félagsins á 2. hæð Alþýðuhússins. Á Dalvík og í Fjallabyggð eru lúgur á hurðunum.
Jafnframt má senda gögnin rafrænt með tilheyrandi fylgiskjölum á ein@ein.is Vinsamlegast sendið bankaupplýsingar umsækjanda, ef við á.
Dagpeningar - Umsókn um dagpeninga - Staðfesting atvinnurekanda þetta þarf að prenta út og láta atvinnurekanda fylla út.
FRÆÐSLUSTYRKIR
Umsóknareyðublöð (þarf að prenta út) má finna hér
Taka má mynd af eyðublaðinu og senda á ein@ein.is ásamt frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing og nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki.