Hrísey og Dalvík: Kynningarfundir í dag

Í dag, þriðjudaginn 9. júní verður félagið með tvo kynningarfundi á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Fundirnir í dag verða í Hrísey og á Dalvík. Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum. 

  • Hrísey, á veitingastaðnum Akkerinu kl. 17:00
  • Dalvík, í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

 

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.