Hlaðvarp ASÍ - atvinna og afkoma í aðdraganda kosninga

Það er nóg til! 
Alþýðusamband Íslands hefur sett fram áherslupunkta í aðdraganda alþingiskosninga 2021. Af því tilefni kynnir ASÍ röð þátta í hlaðvarpi þar sem starfsmenn samtakanna ræða málin við einstaklinga með innsýn í málefnin og stöðuna í stjórnmálunum.

Í þessum þætti ræðir Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍ, við Arnar G. Hjaltalín, formann Drífanda stéttafélags í Vestmannaeyjum, um atvinnu, afkomu og byggðir.

Smelltu hér til að hlusta (31:13)