Hekl - Eitt laust pláss í kvöld

Vegna forfalla er eitt laust pláss á námskeið í kvöld þar sem félagsmönnum verður kennt að hekla snjókorn þeim að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta haft samband við skrifstofuna á Akureyri til að skrá sig.

Mjög margir skráðu sig á námskeið sem auglýst var nýlega í hvernig eigi að hekla snjókorn. Því hefur verið bætt við öðru námskeiði á Akureyri og verður það haldið kl. 18 á morgun, miðvikudaginn 19. nóvember, í sal félagsins á Akureyri. Nú er verið að hringja í félagsmenn sem skráðir voru á biðlista en allt útlit er fyrir að það sé nú þegar orðið fullt.

  • Hvenær: miðvikudagur 19. nóvember nk. kl. 18:00
  • Hvar: Í sal félagsins á Akureyri
  • Hámarksfjöldi: 12
  • ATH! Það þarf að koma með heklunál nr. 1,5 eða 1,75

Ekkert námskeiðsgjald, en efniskostnaður verður kr. 500.

Leiðbeinandi verður Linda Óladóttir