Heimsókn frá Iðavöllum

Í morgun fékk starfsfólk félagsins á Akureyri skemmtilega heimsókn þegar börn sem eru á elstu deildinni á leikskólanum Iðavöllum litu við. Krakkarnir sungu fyrir okkur nokkur lög og þökkum við kærlega fyrir heimsóknina og sönginn.