Nýlega ákvað félagið að þörf væri á gera heimasíðuna aðgengilega fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Stefna hugbúnaðarhús, sem útbjó síðuna á sínum tíma, var ekki lengi að redda þessu þegar til þeirra var leitað og nú er síðan orðinn skalanleg (responsive) þ.e. hún lagar sig að skjástærð hverju sinni.
Eining-Iðja vonar að upplifun félagsmanna á síðunni sé góð, sama á hvað tæki hún er skoðuð.