Hefur afnám sykurskatts skilað sér til neytenda?

Vörugjöld af sykri, svonefndur sykurskattur var afnuminn um síðustu áramót. Á sama tíma var virðisaukaskattur á matvöru hækkaður úr 7% í 11%. Áhrif breytinganna voru misjöfn eftir vörum allt eftir því hve mikinn sykur/sætuefni viðkomandi vara innihélt og hvert verð hennar var í upphafi.

Dæmi um sætar mat- og drykkjarvörur sem báru vörugjald (sykurskatt)

  • Sykur, molasykur, púðursykur o.þ.h. – 210 kr./kg.
    • Gosdrykkir – 21 kr./l.
    • Ís – 32 kr./l.
    • Sultur, grautar, ávaxtamauk – 210 kr./kg. af viðbættum sykri
    • Kex og sætabrauð - 210 kr./kg. af viðbættum sykri
    • Súkkulaði og sælgæti - 210 kr./kg. af viðbættum sykri
    • Sætar mjólkurvöru - 210 kr./kg. af viðbættum sykri
    • Sætt morgunkorn - 210 kr./kg. af viðbættum sykri

Verðlagseftirlitið áætlaði að vöruflokkurinn sykur, súkkulaði, sælgæti o.fl. myndi lækka u.þ.b. um 10% að meðaltali, en í honum eru allar ofantaldar vörur nema sætar mjólkurvörur og morgunkorn.

Samkvæmt vísitölu neysluverð þá lækkaði vöruflokkurinn hins vegar aðeins um 4,6% á tímabilinu ágúst 2014 til október 2015. Þetta er mun minni lækkun en verðlagseftirlitið áætlaði.

Nánari umfjöllun um afnám sykurskattsins og hvernig hún hefur skilað sér til neytenda.