Laus orlofshús og íbúðir í sumar

Í gær kl. 10:00 var opnað á netinu fyrir það sem enn var laust í sumar hvað varðar orlofshús og íbúðir. Hægt var að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. Óhætt er að segja að það hafi verið handagangur í öskjunni frá kl. 10:00 og fram eftir degi, bara milli kl. 10 og 12 bókuðust 71 vika. Félagsmenn voru duglegir að fara inn á orlofsvef félagsins til að skoða hvað væri laust og bóka en þrátt fyrir það stoppaði síminn varla á skrifstofunum.

Laus tímabil

  • Júní - 54 vikur, þar af 18 á Illugastöðum og 5 á höfuðborgarsvæðinu
  • Júlí - allt farið
  • Ágúst - 40 vikur, þar af 18 á Illugastöðum og 10 á höfuðborgarsvæðinu.

Lausar íbúðir og hús má sjá á Orlofsvef félagsins