Hafdís E. Ásbjarnardóttir ráðin þjónustufulltrúi

Nýlega auglýsti félagið eftir þjónustufulltrúa til starfa á Akureyri og bárust 61 umsókn til félagsins. Capacent sá um ráðningarferlið og er búið að ráða í starfið. Nýr starfsmaður félagsins heitir Hafdís E. Ásbjarnardóttir og mun hún hefja störf þann 1. apríl nk.

Hafdís útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2014. Hún hefur meðal annars starfað hjá starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar og hjá Landsbankanum.