Hætt hefur verið við að fara í leikhús á morgun á Melum í Hörgárdal vegna óvissu með mokstur bæði innanbæjar og utan hans. Félagið var búið að bjóða félagsmönnum sem eru lífeyrisþegar á leikritið Gauragang sem Leikfélag Hörgdæla er að sýna á Melum í Hörgárdal. Í fyrramálið verður hringt í þau sem búin voru að skrá sig í ferðina.