Gylfi: Þetta verða með erfiðustu kjaraviðræðum

Á heimasíðu ASÍ má finna viðtal við Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ. Þar segir hann m.a. um samningaviðræðurnar framundan að þetta verði með erfiðustu kjaraviðræðum sem við höfum farið í en núverandi samningar renna út eftir 18 daga. Hann segir þó jákvætt að stjórnvöld hafi sýnt vilja í síðustu viku til að koma af krafti inn í viðræðurnar. Hann segir væntingar launamanna miklar en ýmis ljón séu í veginum, þannig telji SA svigrúmið til hækkana miklu minna en ASÍ.

Viðtalið við Gylfa má sjá hér.