Guðrún áfram svæðisfulltrúi Hríseyjar og Dalvíkurbyggðar

Guðrún J. Þorbjarnardóttir
Guðrún J. Þorbjarnardóttir

Í gær fór fram fundur á Dalvík og í Hrísey sem var samkeyrður í gegnum netið. Um var að ræða aðalfund svæðisráðs Hríseyjar og Dalvíkurbyggðar. Á fundinum var Guðrún J. Þorbjarnardóttir kosin aftur sem svæðisfulltrúi svæðisráðsins, en hún bauð sig ein fram í stöðuna og var kjörin með lófaklappi. Sigríður Þ. Jósepsdóttir, var aftur kjörin varasvæðisfulltrúi og var hún einnig kjörin með lófaklappi. Svæðisfulltrúar sitja í aðalstjórn félagsins fyrir hönd síns svæðis og eru varamenn sjálfkjörnir í trúnaðarráð.

Á fundinum fór Björn formaður einnig yfir stöðuna sem uppi er í kjaraviðræðum og jafnframt fór hann aðeins yfir niðurstöður nýlegrar kjarakönnunar félagsins.