Grýtubakkahreppur hætti við hækkanir

Í nóvember sendi Eining-Iðja fyrirspurn á öll sveitarfélög á svæðinu og óskaði eftir upplýsingum hvort áætlað sé í fjárhagsáætlun viðkomandi sveitarfélags að hækka gjaldskrár þess fyrir árið 2014. Tvö svör bárust í vikunni. Í tölvupósti sem barst formanni félagsins var tilkynnt að á fundi sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps í vikunni var ákveðið að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem átti að taka gildi 1. janúar nk.

Eining-Iðja fagnar þessari ákvörðun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps.

5% hækkun í Hörgársveit
Í bréfi sem barst frá Hörgársveit segir að gert sé ráð fyrir að dvalargjald á leikskóli á árinu 2014 hækki um 5% frá fyrra ári en jafnframt er tekið fram að það hafi í raun ekki hækkað síðan 2006. Mötuneytisgjöld munu einnig hækka um 5% milli ára. Sorpgjöld heimila og frístundahúsa verða óbreytt milli ára svo og vatnsgjald á Hjalteyri.

Félagið skorar á sveitarstjórn Hörgársveitar að endurskoða þessar hækkanir, því allir þurfa að vinna saman til að ná stöðugleika og vinna gegn verðbólgunni.