Grenivík og Akureyri: Kynningarfundir í dag

Fundur á Akureyri verður í Alþýðuhúsinu
Fundur á Akureyri verður í Alþýðuhúsinu

Í dag, fimmtudaginn 11. júní verður félagið með tvo kynningarfundi á nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Fundirnir í dag verða á Grenivík og á Akureyri. Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.

  •  Grenivík, í Gamla skólanum kl. 17:00
  • Akureyri, í salnum á 4. hæð Skipagötu 14 kl. 20:00 

Dagskrá:

  1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
  2. Önnur mál.

 

Sýnum ábyrga afstöðu!

Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.