Greitt úr Félagsmannasjóði SGS síðar í dag

Félagsmenn aðildarfélaga SGS, þar á meðal Einingar-Iðju, sem starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS. Seinni partinn í dag, 1. febrúar 2021, verður greitt úr sjóðnum í fyrsta skipti.

Félagsmenn sem komið hafa nauðsynlegum upplýsingum á framfæri við sitt stéttarfélag eða SGS í tíma, og launagreiðandi skilað framlögum af, fá greiðslu síðar í dag.  

Berist ekki greiðslur er viðkomandi bent á að hafa samband við SGS með tölvupósti á netfangið sgs@sgs.is. Miðað er við að greiða aftur úr sjóðnum 1. mars næstkomandi.